|
Stefna um vistvæn innkaup ríkisins sem ríkisstjórn Íslands hefur nýlega samþykkt, er sérgreind stefna sem heyrir undir innkaupastefnu ríkisins 2007 og nær til ráðuneyta, ríkisstofnana og ríkisaðila. Markmið hennar er að tryggja að við öll innkaup ríkisins sé tekið tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða við mat á bestu kaupum, í samræmi við innkaupastefnu ríkisins. Sjá hér.

Handbók ESB um vistvæn innkaup er skýrt og gott grunnrit um vistvæn innkaup og flest sem þeim við kemur, auk ýmissa góðra dæma. Sjá hér. 
Bæklingurinn Góð kaup var unnin á vegum norrænu ráðherranefndarinnar og gefur gott yfirlit yfir vistvæn innkaup og hvað þau fela í sér. Sjá hér. Procura+ er evrópskt samstarfsverkefni opinberra aðila um vistvæn innkaup. Á þeirra vegum hefur komið út þessi aðgengilega handbók um vistvæn innkaup. Sjá hér.

Þessi bæklingur frá Umhverfisráðuneytinu og Landvernd hefur að geyma fróðlegar upplýsingar um umhverfismál í daglegu lífi og góðar hugmyndir sem geta nýst vel í vistvænum innkaupum. Sjá hér.
|