Vinn.is

Um umhverfisskilyrði fyrir útboð

Mikilvægt er að umhverfisskilyrðin uppfylli eftirfarandi grundvallaratriði:

  • Skilyrðin komi fram í útboðsgögnum og útskýrt hvernig þau verði metin.
  • Skilyrðin séu sett fram í samræmi við meginreglur ESB m.a. um gegnsæi, jafnræði bjóðenda og meðalhófsregluna.
  • Skilyrðin sé hægt meta á hlutlægan og magnbundinn hátt.
  • Fram komi hvaða gögn skuli fylgja með tilboði til að sanna uppfyllingu skilyrða.

Nauðsynlegt er að vanda vel til verka þegar umhverfisskilyrði eru sett fram í útboðum. Þau þurfa að byggja á faglegri þekkingu á innkaupalöggjöf og umhverfismálum auk þess að vera raunhæf. Best er að fylgja skilgreindum umhverfisskilyrðum sem til eru fyrir ýmsa vöruflokka, svo sem umhverfisskilyrði VINN  eða umhverfisskilyrðum ESB. Einnig er mikilvægt að þekkja markaðinn vel áður en skilyrði eru sett fram.

Athugið að hægt er að setja fram umhverfisskilyrði með ýmsum hætti; sem lágmarksskilyrði, matsskilyrði eða sem samningsskilyrði.

Þú ert hér: Forsíða Kaupendur Útboð Um umhverfisskilyrði

Um verkefnið

Verkefnið Vistvæn innkaup (VINN) varð til árið 2003 sem samstarfsvettvangur opinberra aðila sem höfðu áhuga á að innleiða og vinna að vistvænum innkaupum. Endurskoðuð stefna 2013 var útvíkkuð og tekur nú einnig til græns ríkisreksturs. Meginþættir verkefnisins eru að þróa vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur, upplýsa og aðstoða.

 

Aðstandendur verkefnisins

Fjármálaráðuneytið
Umhverfisráðuneytið
Ríkiskaup
Umhverfisstofnun
Samband íslenskra sveitarfélaga
Hafnarfjarðarbær
Reykjavíkurborg
Landspítali

Hafðu samband

Hafir þú spurningar, athugasemdir eða fréttir er best að hafa samband í gegnum This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

Sjá einnig á Facebook og Twitter.

 

Flestar myndirnar á vefnum tók Hugi Ólafsson en nokkrar eru fengnar úr myndabanka norden.org.