Vinn.is

Hvað eru vistvæn innkaup?

Vistvæn innkaup er að velja þá vöru eða þjónustu sem er síður skaðleg umhverfinu eða heilsu manna og ber sama eða lægri líftímakostnað samanborið við aðrar vörur og þjónustu sem uppfylla sömu þörf.

Fréttir

Grænt bókhald lækkar rekstrarkostnað

Stofnanir ríkisins eru hvattar til þess að minnka umhverfisáhrif daglegs reksturs en með Grænu bókhaldi fá stofnanir yfirsýn yfir magntölur í rekstri og geta þannig komið auga á tækifæri til að draga úr rekstrarkostnaði og umhverfisáhrifum  á sama tíma. Nú er komið að skilum fyrir árið 2015 en frestur er til 1. apríl n.k.

Sem dæmi má nefna að:

Pappírsnotkun stofnana sem skiluðu Grænu bókhaldi minnkaði um 29% og ef allar stofnanir gerðu slíkt hið sama myndu um 70 milljónir sparast í ríkisrekstri. 

Raforkunotkun á hvert stöðugildi lækkaði um 13%

Dæmi um árangur og stöðu þeirra stofnana sem skilað hafa síðustu ár má sjá hér.

Umhverfisstofnun fer með rekstur verkefnisins og veitir stofnunum aðstoð og ráðleggingar við gerð bókhaldsins. Hægt er að hafa samband við Hólmfríði Þorsteinsdóttur um aðstoð This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og hvetjum við stofnanir til að gera það.

Skilum Grænu bókhaldi á netfangið: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

https://www.facebook.com/graennrikisrekstur/

Þú ert hér: Forsíða Nýtt frá stofnunum Grænt bókhald lækkar rekstrarkostnað

Um verkefnið

Verkefnið Vistvæn innkaup (VINN) varð til árið 2003 sem samstarfsvettvangur opinberra aðila sem höfðu áhuga á að innleiða og vinna að vistvænum innkaupum. Endurskoðuð stefna 2013 var útvíkkuð og tekur nú einnig til græns ríkisreksturs. Meginþættir verkefnisins eru að þróa vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur, upplýsa og aðstoða.

 

Aðstandendur verkefnisins

Fjármálaráðuneytið
Umhverfisráðuneytið
Ríkiskaup
Umhverfisstofnun
Samband íslenskra sveitarfélaga
Hafnarfjarðarbær
Reykjavíkurborg
Landspítali

Hafðu samband

Hafir þú spurningar, athugasemdir eða fréttir er best að hafa samband í gegnum This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

Sjá einnig á Facebook og Twitter.

 

Flestar myndirnar á vefnum tók Hugi Ólafsson en nokkrar eru fengnar úr myndabanka norden.org.