|
Hvers vegna vistvæn innkaup? |
|
|
|
|
Sunnudagur, 01. júní 2008 15:05 |
|
Vistvæn innkaup fela í sér margs konar ávinning fyrir kaupendur, seljendur og samfélagið allt. Vistvæn innkaup... ...draga úr umhverfisáhrifum starfsemi. Við innkaup eru teknar ákvarðanir sem hafa áhrif á notkun vöru og þjónustu víða í starfsemi fyrirtækja og stofnana. Með því að taka mið af þörf, líftímakostnaði og umhverfisáhrifum við innkaup er hægt að draga verulega úr umhverfisáhrifum sem fylgja notkun á ýmis konar vöru og þjónustu í starfseminni. Þannig er einnig stuðlað að bættu vinnuumhverfi og betri heilsu.
...geta minnkað kostnað og aukið gæði. Við vistvæn innkaup er tekið tillit til kostnaðar í gegnum allan líftíma vörunnar þ.e. við innkaup, rekstur, viðhald og förgun vörunnar. Einnig er lögð áhersla á að varan eða þjónustan uppfylli þarfir og væntingar kaupandans. Að leggja aukna áherslu á líftímakostnað og að skilgreina þörf getur aukið gæði innkaupa og minnkað kostnað þegar á heildina er litið.
... auka framboð á vistvænum vörum og þjónustu og hvetja til nýsköpunar. Með því að leggja aukna áherslu á vistvæn opinber innkaup er hægt að stækka markað og auka framboð af vistvænum vörum og þjónustu. Auknar kröfur hvetja jafnframt til nýsköpunar og samkeppni um leiðir til að minnka álag á umhverfi og heilsu. Þar sem hið opinbera er umsvifamikið í innkaupum hefur það mikil tækifæri til að hafa áhrif á markaðinn á þessu sviði. Sjá nánar um ávinning vistvænna innkaupa hér (á ensku).
|