|
Sunnudagur, 01. júní 2008 15:06 |
|
Vinna má að vistvænum innkaupum með ýmsum hætti. Kaupendur geta valið umhverfisvænar vörur og þjónustu m.a. innan rammasamninga- Útboðsaðilar geta boðið út vistvænar vörur og þjónustu m.a. með því að setja umhverfisskilyrði í útboðsgögn og undirbúa útboðið vel
- Seljendur geta einnig auðveldað vistvæn innkaup viðskiptavina með ýmsum hætti m.a. með góðum upplýsingum til viðskiptavina.
- Stjórnendur geta innleitt vistvæn innkaup í starfsemi sína og samþætt þau öðrum innkaupum. Að innleiða vistvæn innkaup leiðir til skipulegra og góðra vinnubragða við innkaup. Æskilegt er að innleiða vistvæn innkaup stig af stigi með því að vinna á ýmsum sviðum innan starfseminnar.
|