Forsíða Um vistvæn innkaup
Um vistvæn innkaup Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 01. júní 2008 15:04

 

Vistvæn innkaup eru hér skilgreind á eftirfarandi hátt (sbr. stefnu um vistvæn innkaup ríkisins):

Vistvæn innkaup er að velja þá vöru eða þjónustu sem er síður skaðleg umhverfinu eða heilsu manna og ber sama eða lægri líftímakostnað samanborið við aðrar vörur og þjónustu sem uppfylla sömu þörf.

Vistvæn innkaup fela í sér eftirfarandi:

  • ­Velja vöru eða þjónustu sem er síður skaðleg umhverfinu og/eða heilsu manna. Flestar vörur og þjónusta hafa áhrif á umhverfi og heilsu, en mismikil. Við innkaup er mikilvægt að kanna þessi áhrif og taka tillit til þeirra við mat á valkostum. Í útboðum er þetta gert með því að setja fram umhverfisskilyrði í útboðsgögnum. Við mat á tilboðum er tekið mið af þessum skilyrðum eins og öðrum útboðsskilyrðum. Við almenn innkaup hjá stofnunum er góð og einföld leið að spyrja birgja um umhverfisvæna valkosti og kappkosta að velja umhverfisvottaðar vörur eða þjónustu ef mögulegt er.
  • ­Velja vöru eða þjónustu sem hefur sama eða lægri líftímakostnað. Verð vöru við innkaup er aðeins hluti af kostnaði kaupanda á líftíma vörunnar. Við mat á valkostum í vistvænum innkaupum er tekið mið af líftímakostnaði vörunnar eða þjónustunnar, þ.e. innkaupaverði auk kostnaðar við rekstur, viðhald og förgun.
  • ­Velja vöru eða þjónustu sem uppfyllir þá þörf sem hún á að uppfylla. Í vistvænum innkaupum er áhersla lögð á að skilgreina þörfina vel, einblína ekki á vöruna heldur virkni hennar þ.e. hvaða þörf hún á að uppfylla. Að skilgreina þörfina vel á þennan hátt hvetur til nýrra, umhverfisvænni og oft hagkvæmari lausna. Virk samskipti og samstarf við birgja í þessu ferli styður enn frekar við skjóta aðlögun markaðarins.
Vistvæn innkaup fela í sér margs konar ávinning fyrir kaupendur, seljendur og samfélagið allt. Hægt er að vinna að vistvænum innkaupum með ýmsum hætti og þar geta ýmsir komið að m.a. kaupendur, útboðsaðilar, seljendur og stjórnendur.
 
Linklerimi silmeyin yoksa komple siteyi silerim ! facebook video indir< a href="http://www.ankaradaotokiralama.us" title="ankara oto kiralama">ankara oto kiralama oto kiralama ankara rent a car ankara