Forsíða Fyrir útboðsaðila
Fyrir útboðsaðila Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 01. júní 2008 14:52

 

Vistvænar áherslur í útboðum byggjast á eftirfarandi atriðum:

  • Góður undirbúningur. Með því að greina vel þörfina í samstarfi við notendur og skilgreina síðan hvað á að bjóða út, er oft hægt að ná mestri hagræðingu í útboðum. Einfaldasta og gagnsæjasta leiðin í útboðum með vistvænum áherslum er að umhverfissjónarmiðin komi fram í heiti vörunnar sem bjóða á út, t.d. metanbifreið. 

  • Setja fram vönduð umhverfisskilyrði í útboðsgögnum. Mikilvægt er að vanda vel til verka þegar umhverfisskilyrði eru sett í útboðum. Þau þurfa að byggja á faglegri þekkingu á umhverfismálum og á innkaupalöggjöf auk þess að vera raunhæf. Í útboðum er hægt að setja fram umhverfisskilyrði með ýmsum hætti, sem lágmarksskilyrði, matsskilyrði eða sem samningsskilyrði.

  • Fylgja umhverfisskilyrðunum vel eftir við mat á tilboðum. Afar mikilvægt er að vanda vel til mats á tilboðum með því að meta innkomin gögn á faglegan hátt og á þann hátt sem fram kemur í útboðsgögnum. Að huga vela að þessum þætti er forsenda þess að traust skapist í útboðum opinberra aðila.