|
Sunnudagur, 01. júní 2008 15:02 |
|

Aukin umhverfisvitund í samfélaginu og aukin áhersla á vistvæn innkaup opinberra aðila eykur eftirspurn eftir umhverfisvænum vörum og þjónustu. Að bjóða upp á umhverfisvæna vöru og þjónustu er því tækifæri seljenda til að koma til móts við þennan aukna áhuga og um leið auka sölu og ánægju viðskiptavina. Opinberir aðilar leggja nú vaxandi áherslu á vistvæn innkaup. Með stefnu um vistvæn innkaup ríkisins er markmiðið að við öll innkaup ríkisins sé tekið tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða. Ætlunin er að draga úr umhverfisáhrifum opinberrar starfsemi og jafnframt hvatt til nýsköpunar og samkeppni á markaði um leiðir til að minnka álag á umhverfið. Undanfarin ár hefur aukin vitund um umhverfismál leitt til nýrra lausna eins og visthæfir bílar eru gott dæmi um. Aukning í sölu á visthæfum bílum er einnig gott dæmi um hve hratt neytendur geta haft áhrif á markaðinn. Hvað geta seljendur gert til að bregðast við auknum áhuga viðskiptavina á vistvænum innkaupum? Hér má finna nokkur ráð: - Kynnið ykkur væntingar og kröfur viðskiptavina. Það er ekkert nýtt að kynna sér kröfur og óskir viðskiptavina, það sem er nýtt er að þær fjalla nú einnig um umhverfissjónarmið tengd vörum og þjónustu.
- Kynnið ykkur umhverfiskröfur sem tengjast tilteknum vörum eða þjónustu. Opinberir aðilar og stærri fyrirtæki setja í auknum mæli skýrar umhverfiskröfur við innkaup m.a. í útboðum. Kröfur opinberra aðila sem munu aukast smám saman á næstu árum má kynna sér m.a. með því að skoða gátlista fyrir almenn innkaup og umhverfisskilyrði fyrir ýmsa vöruflokka.
- Kynnið ykkur vel umhverfisáhrif þeirrar vöru eða þjónustu sem þið hafið á boðstólnum. Hver eru helstu umhverfisáhrif vörunnar eða þjónustunnar? Er hún umhverfismerkt? Hvað felur umhverfismerkið í sér? Hver er líftímakostnaðurinn? Verið vel að ykkur um þessi mál - þið munuð án efa fá æ fleiri spurningar um umhverfismál frá viðskiptavinum ykkar, og þá er ekki gott að standa á gati!
- Komið ykkur upp umhverfisstjórnunarkerfi. Vottað umhverfisstjórnunarkerfi, s.s. ISO 14001, getur orðið forsenda fyrir viðskipti í sumum tilvikum. Umhverfisstjórnunarkerfi getur einnig verið býsna gott verkfæri til að lágmarka skipulega umhverfisáhrif vegna starfseminnar- og um leið bæta gæðin í starfseminni.
- Ræðið við viðskiptavini. Oft er gagnlegt að ræða nýjar áherslur við viðskiptavini og spyrja um óskir þeirra með það fyrir augum að gera viðskiptavinum til hæfis. Upp úr því geta líka sprottið nýjar hugmyndir og lausnir. Kannið framboð hjá ykkar birgjum og óskið eftir auknu úrvali á umhverfisvænum vörum.
- Kannið hvað samkeppnisaðilarnir hafa upp á að bjóða. Kannið umhverfisstarf og framboð samkeppnisaðilanna. Þar geta leynst góðar hugmyndir og tækifæri til að gera betur.
- Standið við stóru orðin. Skrifið og segið ekki meira um umhverfismálin en þið getið staðið við. Trúverðugleiki er númer eitt, tvö og þrjú. Í útboðum er mikilvægt að geta sýnt fram á með óyggjandi hætti að umhverfisskilyrði séu uppfyllt. Áreiðanlegt umhverfismerki (vottað af óháðum aðila) á vöru og þjónustu er góð leið til að sanna að svo sé. Að öðrum kosti er ráðlegt að útvega trúverðugar upplýsingar um umhverfismál tengd vörunni eða þjónustunni.
- Upplýsið viðskiptavini um umhverfismálin. Oft eru upplýsingar seljenda um umhverfismál af skornum skammti. Gefið viðskiptavinum greinargóðar umhverfisupplýsingar um þær vörur og þjónustu sem eru á boðstólnum. Sendið reglulega upplýsingar til viðskiptavina með lykiltölum s.s. um innkaupamagn þeirra, hlutfall af umhverfisvænum vörum og einnig fréttir af fyrirtækinu, nýjum umhverfisvænum vörum o.fl. Slíkt eykur trúverðugleika og líkur á frekari samningum.
|