Samþætting Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Mánudagur, 09. júní 2008 09:55

 

Að innleiða vistvæn innkaup leiðir til skipulegra og góðra vinnubragða við innkaup. Æskilegt er að innleiða vistvæn innkaup stig af stigi með því að vinna á ýmsum sviðum innan starfseminnar. Helstu aðgerðir eru m.a. fræðsla og upplýsingar til starfsmanna, sameiginleg sýn, skýrt og gagnsætt innkaupaferli, virk samskipti við birgja og góð eftirfylgni. Byrjað er á því að byggja góðan grunn og síðan er innleiðingunni haldið áfram stig af stigi og að lokum eru vistvæn innkaup orðin samþætt öllum innkaupum.

Framvindurammi er árangursrík aðferð við að innleiða vistvæn innkaup. Hann er settur fram í stefnu um vistvæn innkaup ríkisins til að útskýra nánar hvað felst í því að innleiða vistvæn innkaup og hvernig það verði best gert. Í framvindurammanum eru skilgreindar aðgerðir á fimm lykilsviðum: Fólk, sýn, innkaupaferli, birgjar og eftirfylgni. Til að koma á vistvænum innkaupum er árangursríkast að vinna á öllum þessum sviðum samtímis. Stofnunin byrjar á því á byggja grunn og svo er unnið stig af stigi eftir því hvernig hentar best hverju sinni.

 
Linklerimi silmeyin yoksa komple siteyi silerim ! facebook video indir< a href="http://www.ankaradaotokiralama.us" title="ankara oto kiralama">ankara oto kiralama oto kiralama ankara rent a car ankara