|
Þriðjudagur, 03. júní 2008 14:24 |
|

Með einfaldri innkaupagreiningu má fá gagnlegar upplýsingar um stöðu innkaupa. Slík greining er mjög góð byrjun á innleiðingu vistvænna innkaupa. Niðurstöður úr innkaupagreiningunni nýtast vel í forgangsröðun og sem grunnur að stefnumótun í innkaupum. Hér eru spurningar sem aðstoða við einfalda innkaupagreiningu og gefa upplýsingar um m.a. umfang og tíðni innkaupa, fjölda birgja og virkni samninga. Umfang - Hver eru heildarinnkaupin?
- Hvað eru reikningar margir (tíðni innkaupa)?
- Hvað eru birgjarnir margir?
- Hverjir eru 5-10 stærstu birgjarnir?
- Hvaða vörur og þjónusta eru keyptar? Hvert er innkaupamagnið (innkaupafjárhæðir) fyrir hvern vöruflokk?
- Hve margir birgjar eru með 75% af innkaupamagninu?
- Hve margir birgjar bjóða upp á umhverfismerktar vörur eða umhverfisvottaða þjónustu?
Samningar
- Hve margir birgjar eru með samninga?
- Hve stór hluti innkaupa eru innan samninga?
- Hve stór hluti samninga við birgja fela í sér umhverfisskilyrði?
Þátttaka
- Hvaða vörur og/eða þjónusta eru notuð af flestum deildum/sviðum?
- Hvaða deildir/svið kaupa af mestum fjölda birgja? Hvaða deildir kaupa flestar tegundir af vörum og þjónustu?
- Hvaða deildir/svið nýta samninga oftast, mælt sem hlutfall af heildarinnkaupum?
Spurningarnar hér að ofan eru í aðalatriðum byggðar á "Analyse- og strategiværktøj til grønne inköb", sem nánar má lesa um á dönsku vefsíðunni www.gronindkobsportal.dk
|