Byggja grunn Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 03. júní 2008 14:24

 

Við innleiðingu vistvænna innkaupa er byrjað á því að byggja góðan grunn að vistvænum innkaupum, síðan er innleiðingunni haldið áfram stig af stigi og að lokum eru vistvæn innkaup orðin samþætt öllum innkaupum.

Taflan hér fyrir neðan sýnir helstu aðgerðir sem mikilvægar eru til að byggja grunn að árangursríkum vistvænum innkaupum. Taflan er tekin úr stefnu um vistvæn innkaup ríkisins og byggir á aðferðafræðinni “Framvindurammi” (e. flexible framework) sem lesa má um hér.

Ath! Þó að hér sé talað um stofnanir má heimfæra þessa aðferðafræði á allar tegundir starfsemi, opinbera jafnt sem fyrirtæki.

 

1. STIG: Að byggja grunn að vistvænum innkaupum stofnunar

LYKILSVIÐ

HELSTU AÐGERÐIR

FÓLK:

Byggja upp færni, fræðsla og upplýsingar

Lykilfólk í innkaupum hefur fengið fræðslu um vistvæn innkaup. Vistvæn innkaup eru hluti af grunnþjálfun nýrra starfsmanna.

SÝN:

Leiða með fordæmi, stefnumótun og samskipti

Samkomulag um skýr meginmarkmið í vistvænum innkaupum stofnunarinnar. Innkaupareglur m.a. um vistvæn innkaup stofnunarinnar samþykktar af æðsta yfirmanni. Markmið og innkaupareglur vel kynntar starfsmönnum og lykilbirgjum.

INNKAUPAFERLI:

Fjarlægja hindranir og bæta aðgengi, verkfæri og samþætting

Greining á innkaupum og helstu umhverfisáhrifum hefur verið gerð. Verklag í innkaupum stofnunar vel skilgreint. Lykilsamningar fela í sér umhverfis­skilyrði. Samningar metnir eftir bestu kaupum en ekki eingöngu lægsta verði.

BIRGJAR:

Grípa tækifærin, virkjun birgja

Greining á lykilbirgjum út frá kostnaði og umhverfis­áhrifum hefur verið gerð. Samráð við lykil­birgja við gerð innkaupareglna fyrir stofnunina.

EFTIRFYLGNI:

Stöðugar umbætur, mælingar og endurgjöf

Þýðingarmestu umhverfisþættir í innkaupum hafa verið skilgreindir. Einföldum mælikvörðum um alla þætti á stigi 1 hefur verið náð.