|
Vistvæn innkaup stig af stigi |
|
|
Sunnudagur, 01. júní 2008 14:51 |
|
Eftir því sem innkaup hjá stofnun eða fyrirtæki eru betur skipulögð, þeim mun auðveldara er að innleiða vistvæn innkaup. Hve skýr eru verkferli og ábyrgð í innkaupum? Hvaða þekkingu og upplýsingar hefur innkaupafólk? Hefur stofnunin sett sér skýr markmið um innkaup? Hvernig vinnur stofnunin með birgjum? Hvernig er eftirfylgni innkaupa? Hér eru ráðleggingar um það hvernig innleiða má vistvæn innkaup stig af stigi á árangursríkan hátt. Hvað skal gera? Einföld innkaupagreining. Áður en hafist er handa við að skipuleggja innkaup og innleiða vistvænar áherslur er mjög gagnlegt að byrja á því að gera einfalda innkaupagreiningu sem gefur góða yfirsýn yfir stöðu innkaupanna. Hér má finna spurningar sem hjálpa til við gera einfalda innkaupagreiningu sem nýtist í markvissa vinnu með innkaup m.a. til stefnumótunar, gerð innkaupareglna og í aðgerðaráætlun. - Byggja grunn að vistvænum innkaupum. Æskilegt er að vistvæn innkaup séu innleidd stig af stigi með því að vinna á ýmsum sviðum innan starfseminnar. Byrjað er á því að byggja góðan grunn sem felur í sér m.a. fræðslu til innkaupafólks, innkaupareglur og markmið, greiningu á innkaupum og skilgreining mælikvarða.
- Samþætta öllum innkaupum stig af stigi. Þegar búið er að byggja góðan grunn er innleiðingunni haldið áfram stig af stigi og að lokum eru vistvæn innkaup orðin samþætt öllum innkaupum. Hér má lesa hvernig hægt er innleiða vistvæn innkaup stig af stigi með árangursríkum hætti.
|