|
Mánudagur, 09. júní 2008 09:47 |
|
 Samkvæmt innkaupastefnu ríkisins skal tryggja að ávallt sé tekið tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða. Þetta má á hagkvæman hátt útfæra með því að taka tillit til umhverfissjónarmiða, líftímakostnaðar og hve vel þörfin er uppfyllt. Nánar má lesa um vistvæn innkaup hér. Við val á besta kosti við innkaup þarf því að hafa í huga eftirfarandi - Uppfyllir varan eða þjónustan þörfina sem hún á að uppfylla?
- Hver er líftímakostnaðurinn?
- Hvaða vara eða þjónusta er best út frá umhverfissjónarmiði?
Stundum getur verið erfitt að meta hvað er best út frá umhverfissjónarmiði, jafnvel þó að upplýsingar um umhverfisþætti liggi fyrir. Þá er gott að hafa eftirfarandi atriði í huga: - Velja umhverfisvottað: Vara eða þjónusta með áreiðanlegu umhverfismerki er trygging neytenda fyrir því að hún skaði umhverfið minna en aðrar sambærilegar vörur eða þjónusta. Ef um þjónustu er að ræða ættum við að velja fyrirtæki sem er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi ef kostur er. Athugið að hið síðastnefnda á aðeins við um þjónustu en ekki vörur. Ekki er leyfilegt að merkja vörur með merki ISO 14001 þar sem það segir ekkert til um eiginleika vörunnar.
- Velja samkvæmt gulu atriðunum í gátlistunum: Ef til er umhverfisgátlisti fyrir vöruna þá er mikilvægast að leggja áherslu á þau atriði sem merkt eru með gulu.
- Nota skynsemina: Ef ekki er hægt að kaupa umhverfisvottað og enginn gátlisti er fyrir hendi, ætti einkum að velja vörur sem hafa m.a. minni orkunotkun, hafa verið fluttar styttri vegalengdir, leiða til minni efnanotkunar eða hafa minni umbúðir.
|