| Spyrja seljendur - Gátlistar |
|
| Sunnudagur, 01. júní 2008 14:50 | |
|
Við almenn innkaup undir viðmiðunarfjárhæðum ættu þeir sem hafa aðild að rammasamningum að leita fyrst til þeirra seljenda sem hafa gert rammasamning við Ríkiskaup. Nánari upplýsingar um rammasamninga ríkisins má finna hér. Áður en ákvörðun er tekin um innkaup er mikilvægt að spyrja seljendur um umhverfisþætti og líftímakostnað vörunnar eða þjónustunnar. Oft er gott að útskýra fyrir seljanda hvers er óskað og spyrja svo einfaldlega hvaða umhverfisvæna valkosti seljendur hafa upp á að bjóða. Ef svörin eru fá eða loðin er gott að spyrja eftirfarandi spurninga eftir því sem við á:
Því næst eru valkostir bornir saman. Sjá nánar hér um að velja besta kostinn.
Gátlistar: Til að auðvelda kaupendum að spyrja og gera kröfur um umhverfisvæna valkosti hafa verið útbúnir gátlistar fyrir nokkra algenga vöruflokka þar sem umhverfisatriðum er forgangsraðað eftir mikilvægi. Mikilvægustu atriðin eru merkt með gulu. Hér á eftir má finna gátlista fyrir eftirfarandi vöruflokka. Prentvæna útgáfu má nálgast hér.
Við gerð gátlistanna var stuðst við lista sem notaðir eru í nágrannalöndum okkar m.a. af vefsíðunni miljovejledninger.dk, en þar er einnig að finna gátlista á dönsku yfir mun fleiri vöruflokka. |