| Fyrir kaupendur |
|
| Sunnudagur, 01. júní 2008 14:34 | |
|
Hér er að finna hagnýtar upplýsingar um almenn innkaup og stjórnun innkaupa m.a. í opinberum stofnunum. Ef um útboð er að ræða er nánari upplýsingar að finna hér. Við vistvæn innkaup er tekið tillit til líftímakostnaðar, umhverfissjónarmiða og hve vel þörfin er uppfyllt. Sjá nánar hér. Markmiðið er að velja vöru eða þjónustu sem er síður skaðleg umhverfinu eða heilsu manna og ber sama eða lægri líftímakostnað samanborið við aðrar vörur og þjónustu sem uppfylla sömu þörf. Í vistvænum innkaupum er því horft til lengri tíma en oftast er gert. Þetta hljómar skynsamlega, enda eru vistvæn innkaup einfaldlega skynsöm innkaup! Hvernig kaupi ég inn vistvænt?
Hvernig er best fyrir stjórnendur að innleiða vistvæn innkaup? Að innleiða vistvæn innkaup leiðir til skipulegra og góðra vinnubragða við innkaup. Hér má lesa nánar um hvernig innleiða má vistvæn innkaup stig af stigi á árangursríkan hátt. Vistvæn innkaup geta leitt til margs konar ávinnings fyrir kaupendur, seljendur og samfélagið allt. Sjá nánar hér. Aukin áhersla á vistvæn innkaup hjá opinberum aðilum er í samræmi við löggjöf og stefnur á Íslandi og erlendis. Sem dæmi má nefna stefnu um vistvæn innkaup ríkisins sem ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt, en hún er sérgreind stefna sem heyrir undir innkaupastefnu ríkisins. Ýmis sveitarfélög hafa einnig samþykkt innkaupareglur sem kveða á um aukna áherslu á umhverfissjónarmið við innkaup. |