Forsíða Fréttir Ný viðmið fyrir kaffi, te og kakó í Svíþjóð
Ný viðmið fyrir kaffi, te og kakó í Svíþjóð Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 03. desember 2009 15:47

Í Svíþjóð hafa verið gefin út ný viðmið fyrir kaffi-, te- og kakóafurðir. Í þeim felast miklir vistvænir möguleikar, þar sem kaffineysla svía er ein sú mesta í heiminum, um 9,3 kg/mann/ár og fer 10% af neyslunni fram í kaffisjálfsölum. Sænska ríkisstjórnin setti fram markmið um að auka vistvænar neysluvörur í opinberum rekstri árið 2005. Markmiðið er að 25% neysluvara skuli vera vistvænar árið 2010.

Gerðar eru kröfur um vistvænt hráefni, umhverfisvænar framleiðsluaðferðir og að siðferðisleg ábyrgð sé höfð að leiðarljósi, einnig er litið til annarra þátta svo sem umhverfisáhrif við ræktun hráefna. Kröfurnar taka einnig mið af  samþykktum Alþjóða vinnumálastofnunarinnar og Barnasáttmála Sameinuðuþjóðanna.

 Frá 16. nóvember 2009, tekið af heimasíðunni www.msr.se

 
Linklerimi silmeyin yoksa komple siteyi silerim ! facebook video indir< a href="http://www.ankaradaotokiralama.us" title="ankara oto kiralama">ankara oto kiralama oto kiralama ankara rent a car ankara