|
Nýr vefur um vistvæn innkaup |
|
|
|
|
Sunnudagur, 04. maí 2008 12:09 |
|
1. ágúst 2008 Nýr vefur um vistvæn innkaup hefur verið opnaður. Á vefnum eru hagnýtar upplýsingar sem gagnast kaupendum og útboðsaðilum, um það hvernig best er að kaupa inn og bjóða út á vistvænan hátt. Meðal annars eru þar gátlistar og skilyrði sem nýtast vel en einnig leiðbeiningar um innleiðingu vistvænna innkaupa hjá stofnunum. Á vefnum er einnig að finna ráðleggingar til seljenda. Vefurinn styður við auknar áherslur opinberra aðila á því að taka tilltit umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða við innkaup, í samræmi við innkaupastefnu ríkisins og stefnu um vistvæn innkaup ríkisins. Vefurinn er á vegum verkefnisins Vistvæn innkaup, en í stýrihópi verkefnisins sitja fulltrúar frá frá Umhverfisráðuneyti, Ríkiskaupum, Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarbæ.
|