|
Sjö ný íslensk umhverfisskilyrði fyrir útboð |
|
|
|
|
Fimmtudagur, 04. nóvember 2010 15:45 |
|
Að undanförnu hefur verið unnið að gerð íslenskra umhverfisskilyrði fyrir útboð á vegum opinberra aðila. Við gerð þeirra var stuðst við skilyrði sem notuð eru í nágrannalöndum okkar og hjá Evrópusambandinu. Íslensku umhverfisskilyrðin sjö ná til eftirfarandi vöruflokka: · Ræstivörur og þjónusta · Prent- og ljósritunarpappír · Prentþjónusta · Húsgögn · Vefnaðarvörur · Sápa og hársápa · Matvara og veitingaþjónusta Fyrsta útgáfa af skilyrðunum birtast á vef VINN.is og er þau að finna í kaflanum fyrir útboðsaðila undir „umhverfisskilyrði fyrir útboð“. Athugasemdir og ábendingar varðandi skilyrðin eru vel þegnar og óskast sendar á netfangið:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Opinberir aðilar er stór og mikilvægur kaupendahópur og áhrifamáttur þeirra mikill. Með því að setja skýrar kröfur um umhverfissjónarmið í opinberum innkaupum gefst tækifæri til að hvetja til nýsköpunar og virkrar samkeppni um vistvænar vörur og þjónustu á markaðinum. Um leið er stuðlað að því að draga verulega úr umhverfisáhrifum innkaupa og neyslu í opinberri starfsemi og samfélaginu. Miklar vonir eru bundnar við að einkaaðilar jafnt sem opinberir aðilar nýti sér umhverfisskilyrðin við gerð útboðsgagna og stuðli þannig að aukningu í vistvænum innkaupum í landinu. Stöðugt er unnið að gerð umhverfisskilyrði fyrir fleiri vöruflokka og má geta þess að nú nýlega birti Evrópusambandið umhverfisskilyrði fyrir átta nýja vöruflokka.
|