|
Í apríl síðastliðnum setti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fram nýja tillögu að leiðum við vistvæn opinber innkaup. Tilgangurinn er að auka gagnsæi við opinber innkaup og auka samlegð á meðal viðurkenndra aðferða eins og vistvænna opinberra innkaupa (GPP), umhverfishönnunar (Ecodesign), Evrópublómsins (EU Ecolabel) og orkumerkja (Energy label). Í tillögunni er gert ráð fyrir að viðmið fyrir opinber vistvæn innkaup verði sambærileg og núverandi viðmið eru fyrir Evrópublómið. Hlutaðeigandi aðilum er gefinn kostur á að koma með athugasemdir á öllum stigum ferilsins, það er þó yfirlýst markmið tillögunnar að gera ferlið styttra en ferli Evrópublómsins. Nýju viðmiðin munu ekki vera hluti af formlegum samþykktum Evrópuráðsins. Stofnuð hefur verið óformleg nefnd ráðgjafa, sem mun aðstoða Evrópuráðið við að þróa viðmið fyrir opinber vistvæn innkaup. Nefndin er skipuð einum aðila frá hverju aðildarríki auk þriggja fulltrúa frá hagsmunaðilum (t.d. iðnaði, smærri og meðalstórum fyrirtækjum og hagsmunasamtökum. Önnur stærri óformleg nefnd skipuð sérfræðingum frá löndum innan Evrópusambandsins mun starfa áfram og hittast þegar afstaða til víðtækari stefnu um vistvæn opinber innkaup er til umfjöllunar. Á sama tíma er viðkomandi sérfræðingum einnig boðið að taka þátt í vinnuhópum sem koma að gerð nýrra viðmiða. Á fundi í júní sl. naut tillagan um nýjar leiðir við opinber vistvæn innkaup ásamt stofnun óformlegu ráðgjafanefndarinnar, stuðnings sérfræðinga frá öllum aðildarríkjum Evrópusambandsins. Nánari upplýsingar um þróun viðmiða um opinber vistvæn innkaup má finna hér. http://ec.europa.eu/environment/gpp/gpp_criteria_en.htm#process
|