Forsíða Fréttir Vel heppnuð ráðstefna um vistvæn innkaup
Vel heppnuð ráðstefna um vistvæn innkaup Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 05. mars 2010 00:00
Umhverfisráðuneytið og fjármálaráðuneytið buðu til ráðstefnu um vistvæn innkaup föstudaginn 5.mars s.l.  Ráðstefnuna setti Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og síðan kynnti Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra stefnu ríkisins í vistvænum innkaupum. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar var Rikke Dreyer, verkefnisstjóri SKI, innkaupaþjónustu ríkis og sveitarfélaga í Danmörku og flutti hún erindi um Initiative and action plans on public procurement. Gísli Marteinn Baldursson formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar kynnti vistvæn innkaup hjá Reykjavíkurborg og Erla Friðriksdóttir bæjarstjóri í Stykkishólmi talaði um vistvæn innkaup út frá sjónarhorni minni sveitarfélaga. Í lok ráðstefnunnar voru pallborðsumræður og þar sátu fyrir svörum þau Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar, Júlíus S. Ólafsson forstjóri Ríkiskaupa, Erla Friðriksdóttir bæjarstjóri í Stykkishólmi og Rikke Dreyer verkefnisstjóri SKI í Danmörku.
 
Fundarstjórn var í höndum Kolbrúnar Halldórsdóttur, forseta Bandalags íslenskra listamanna og fyrrverandi umhverfisráðherra. Erindin sem flutt voru á  ráðstefnunni má nálgast hér.
 
 
Linklerimi silmeyin yoksa komple siteyi silerim ! facebook video indir< a href="http://www.ankaradaotokiralama.us" title="ankara oto kiralama">ankara oto kiralama oto kiralama ankara rent a car ankara