Forsíða Fréttir Gott gengi Svansins á Íslandi
Gott gengi Svansins á Íslandi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 08. janúar 2010 13:56

 

Norræna umhverfismerkið Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna.

Svansmerkið auðveldar neytendum að velja vörur sem eru vistvænni en flestar sambærilegar vörur á markaðnum.  Svanurinn hefur skapað sér sess sem áreiðanlegasta umhverfismerkið á Norðurlöndunum og hefur mikla útbreiðslu og nýtur góðs traust meðal neytenda. Það er því ánægjulegt að sá hópur neytenda sem velur Svansmerktar vörur fer vaxandi sem og fyrirtækjum sem sækjast eftir að Svansmerkja vöru sína og þjónustu.

Reykjavíkurborg var með útboð á þrifum í leikskólum nú skömmu fyrir jól, þar sem áhersla var lögð á umhverfismál í innkaupum í samræmi við Græn skref Reykjavíkurborgar. Tilboði ISS á Íslandi var tekið, en ISS á Íslandi hlaut umhverfisvottun Svansins í nóvember síðastliðnum.  Í kjölfar þessa útboðs hjá Reykjavíkurborg hefur orðið aukning  umsókna frá  fyrirtækjum  um vottun Svansins og er það einkar ánægjulegt að sjá að bæði einstaklingar og fyrirtæki hugi sífellt meir að umhverfismálum.

 

Í dag hafa 5 íslensk fyrirtæki hlotið vottun Svansins,  þau eru:

ISS – Ræstiþjónusta

Undri – Hreinsiefni

Sólarræsting – Ræstiþjónusta

Guðjón Ó – Prentsmiðja

Oddi –  Prentsmiðja

Einnig er Farfuglaheimilið í Laugardal að endurnýja sitt leyfi þessa dagana.

 

Þessu til viðbótar eru 12 umsóknir um vottun Svansins í vinnslu. Svanurinn vex því og dafnar vel hér á Íslandi!