| Leiðarvísir um siðferðisleg viðmið í Noregi |
|
| Mánudagur, 04. janúar 2010 11:44 | |
|
Yfirvöld í Noregi gáfu nýlega út leiðarvísi um hvernig taka megi mið af siðferðislegum viðmiðum við opinber innkaup. Leiðarvísirinn kynnir hvaða siðferferðislegu viðmið opinberar stofnanir geta beðið birgja sína að uppfylla, á hvaða stigi innkaupaferlisins rétt sé að leggja fram viðmiðin og hvernig megi fylgjast með fylgni birgja við viðmiðin. Leiðarvísirinn var sendur til allra opinberra stofnanna í Noregi og þær hvattar til þess að taka leiðbeiningarnar í notkun. Leiðarvísirinn er í stöðugri þróun í samráði við valin sveitarfélög og birgja og má búast við uppfærðri útgáfu á fyrsta ársfjórðungi 2010. |