Forsíða Fréttir Leiðarvísir um siðferðisleg viðmið í Noregi
Leiðarvísir um siðferðisleg viðmið í Noregi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Mánudagur, 04. janúar 2010 11:44

Yfirvöld í Noregi gáfu nýlega út leiðarvísi um hvernig taka megi mið af siðferðislegum viðmiðum við opinber innkaup. Leiðarvísirinn kynnir hvaða siðferferðislegu viðmið opinberar stofnanir geta beðið birgja sína að uppfylla, á hvaða stigi innkaupaferlisins rétt sé að leggja fram viðmiðin og hvernig megi fylgjast með fylgni birgja við viðmiðin. Leiðarvísirinn var sendur til allra opinberra stofnanna í Noregi og þær hvattar til þess að taka leiðbeiningarnar í notkun.

Nálgast má leiðarvísinn á ensku á slóðinni:
http://www.etiskhandel.no/English/Public_Purchasing/index.html

Leiðarvísirinn er í stöðugri þróun í samráði við valin sveitarfélög og birgja og má búast við uppfærðri útgáfu á fyrsta ársfjórðungi 2010.

Vinsamlegast hafið samband við Magne Paulsrud ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ), ráðgjafa í opinberum innkaupum, fyrir frekari upplýsingar.