Forsíða Fréttir Eiturefnalausir blóðpokar, afurð nýsköpunar. Upplýsingar frá sænska umhverfisráðinu.
Eiturefnalausir blóðpokar, afurð nýsköpunar. Upplýsingar frá sænska umhverfisráðinu. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 23. desember 2009 08:48

Ný skýrsla leiðir í ljós að nýsköpunarhvetjandi útboð getur leitt til eiturefnalausra framleiðsluvara jafnframt því að örva þróun atvinnulífsins. Skýrslan sýnir einnig að eftirspurn slíkrar þróunar er bæði að finna hjá kaupendum og birgjum, jafnframt því að vera ávinningur fyrir samfélagið í formi hreinna umhverfis og heilsuhraustari íbúa.

Nýsköpunarhvetjandi útboð fela í sér að lögð eru fram viðmið sem verða til þess að nýjar vörur koma á markað. Mikil eftirspurn hefur verið eftir vörum sem eru bæði hollari fyrir umhverfið og heilsuna, en erfitt hefur reynst að gera stefnumarkandi viðmið í sambandi við útboð/innkaup. Í skýrslunni hefur, í samvinnu við bæði kaupendur og birgjar, verið gerð athugun á því hvort mögulegt sé með auknum viðmiðum í útboði/innkaupum að örva þróun eiturefnalausra blóðpoka.  Tækniútboð hafa verið notuð til að örva þróun á orkusparandi vörum, sem bæði hefur í för með sér minni umhverfisáhrif og styrkir stöðu sænskra fyrirtækja.

Í skýrslunni eru blóðpokar teknir sem dæmir,  sem í dag innihalda efni sem leka út í blóðið og hafa áhrif á frjósemi kvenna – efni sem að sjálfsögðu væri gott að losna við. Í samtölum við heilbrigðisstarfmenn kemur fram ósk um að þessi efni verði fjarlægð úr pokunum. Birgjar sjá mikla möguleika í þróun nýrra tegunda blóðpoka ef slík viðmið væru lögð fram í nýsköpunarútboðum. Þetta er eitt dæmi af mörgum sem sýnir fram á að óskir útboðsaðila/kaupenda getur hvatt til þróunar nýrra vara sem eru hollari bæði út frá umhverfis- og heilsusjónarmiðum.

Tækniútboð hvetur til þróunar nýrra tækni þ.e.a.s. þróun á vörum sem ekki eru til á markaði. Með því að gera kröfur um nýja tækni er hægt að fá fram jákvæð umhverfisáhrif jafnframt örvunar á vinnumarkaði auk öflugri útflutningi sænskrar umhverfistækni. Fram kemur í skýrslu sem Umhverfisráðuneytið, Rannsóknarsetur Jergrelius o.fl. hafa unnið, að mikilvægt sé að þessi sértæki markaður verði til og efli þróun nýrra tæknifyrirtækja.  Meginmarkmið verkefnisins hefur verið að leggja grundvöll að umhverfisvænni framtiðarfarvegi tækniútboða.

Tækniútboð eru þekkt innan orkugeirans. Í skýrslunni er litið til þess möguleika að nota þetta verkfæri einnig innan efnageirans, með það að leiðarljósi að losna við bæði heilsu- og umhverfisskaðleg efni innan heilsu- og byggingargeirans.

Frá 3. mars 2009, tekið af heimasíðunni www.msr.se