Forsíða Fræðsluefni Umhverfismerki og umhverfisvottun
Umhverfismerki og umhverfisvottun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 03. júní 2008 14:23


Umhverfismerki er trygging neytenda fyrir því að varan eða þjónustan skaði umhverfið minna en aðrar sambærilegar vörur eða þjónusta. Umhverfismerkt vara eða þjónusta uppfyllir tiltekin umhverfisskilyrði sem oftast ná til alls lífsferils vörunnar s.s. hráefnisvals, hönnunar, framleiðslu, flutninga, notkunar og förgunar. Áreiðanlegt umhverfismerki byggir á úttekt óháðs aðila. Dæmi um áreiðanleg umhverfismerki eru norræna umhverfismerkið Svanurinn, umhverfismerki Evrópubandalagsins Blómið, Bra miljöval, Tún og Blái engillinn. Nánari upplýsingar um umhverfismerki má finna á vef Umhverfisstofnunar.

Fyrirtæki eða hvers konar starfsemi með vottað umhverfisstjórnunarkerfi uppfyllir tilteknar kröfur um markvissa stjórnun umhverfisþátta í starfseminni og stöðugar umbætur á frammistöðu í umhverfismálum í samræmi við umhverfisstefnu. Umhverfisstjórnunarkerfi sem byggt er upp samkvæmt ákveðnum stöðlum getur fengið vottun óháðs aðila. Dæmi um slíkan staðal er ISO 14001. Sjá nánar um umhverfisstjórnun á vef Umhverfisstofnunar.

Umhverfisvottun er vottun óháðs aðila um að kröfur áreiðanlegra umhverfismerkja eða umhverfisstjórnunarkerfa séu uppfylltar.

 
Linklerimi silmeyin yoksa komple siteyi silerim ! facebook video indir< a href="http://www.ankaradaotokiralama.us" title="ankara oto kiralama">ankara oto kiralama oto kiralama ankara rent a car ankara