
Handbók ESB um vistvæn innkaup er skýrt og gott grunnrit um vistvæn innkaup og flest sem þeim við kemur, auk ýmissa góðra dæma. Handbókin hefur verið þýdd á flest öll tungumál Evrópuþjóða. Sjá hér. 
Bæklingurinn Góð kaup var unnin á vegum norrænu ráðherranefndarinnar og gefur gott yfirlit yfir vistvæn innkaup og hvað þau fela í sér. 
Procura+ er evrópskt samstarfsverkefni opinberra aðila um vistvæn opinber innkaup. Á þeirra vegum hefur komið út þessi aðgengilega handbók um vistvæn innkaup. Sjá hér.  Þessi bæklingur frá Umhverfisráðuneytinu og Landvernd hefur að geyma fróðlegar upplýsingar um umhverfismál í daglegu lífi og góðar hugmyndir sem geta nýst vel í vistvænum innkaupum. Sjá hér.  Nú er búið að þýða samnorrænu skýrsluna sem gefin var út af norrænu ráðherranefndinni. Markmið þessarar skýrslu er að kynna dæmi um norræn umhverfisviðmið á sameiginlegu sniðmáti fyrir átta vöruflokka: 1)Sápa og hársápa, 2)Dýnur, 3)Hótelþjónusta, 4)Lýsing, 5)Heimilistæki, 6)Sáraumbúðir, 7)Skrifstofupappír og umslög, 8)Prentdufthylki. Sjá hér Í skýrslunni er einnig farið stuttlega yfir aðgerðaráætlanir Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar í vistvænum opinberum innkaupum.
<!--[if !vml]--><!--[endif]-->
|