Forsíða Fræðsluefni Góð dæmi
Góð dæmi um vistvæn innkaup Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 01. júní 2008 15:12

Hér eru góð dæmi um árangursrík vistvæn innkaup frá ýmsum löndum. Í mörgum tilvikum fara hér saman umhverfislegur og fjárhagslegur ávinningur. Þessi dæmi eru tekin af vef ESB um visvæn opinber innkaup (sjá hér), nema annað sé tekið fram

Geta minnkað orkuþörf og losun CO2 verulega

Ef allir opinberir aðilar í Evrópu keyptu grænt rafmagn myndu sparast 60 milljónir tonna af CO2. Enn meira myndi sparast ef gerðar yrðu kröfur um vistvænar byggingar. Opinberir aðilar í Evrópu kaupa árlega 2.8 milljónir tölva sem eru um 12% af markaðnum. Ef keyptar yrðu orkunýtnari tölvur myndu losun CO2 dragast saman um 8 milljónir tonna, sem jafngildir losun frá um einni milljón manna. Sjá nánar á vef Iclei úr verkefninu Relief.

Geta leitt til lægri kostnaðar

  • Amaroussion/Kalithea, Grikklandi: Innkaup á endurunnum pappír í samfloti með fleiri sveitarfélögum leiddi til lægri kostnaðar en fyrir hefðbundinn pappír.
  • Freiburg, Þýskalandi: Menntasvið gerði samning um 4 ára kaupleigu af A-merktum ljósritunarvélum. Enginn viðhaldskostnaður. 75 skólar borga nú eingöngu fyrir fjölda ljósrita. Kostnaður vegna ljósritunar í skólunum hefur nú minnkað um 50%.
  • Kolding, Danmörku: Nær allir samningar innihalda ákvæði um umhverfissjónarmið. Heildarkostnaður vegna innkaupa í sveitarfélaginu hefur minnkað um 10%. Sveitarfélagið Kolding hefur unnið lengi að vistvænum innkaupum með góðum árangri, sjá nánar hér.
  • Tübingen, Þýskalandi. Þar spöruðust €30.000 árlega með því að miðstýra notkun á hreinsiefnum, hreingerningarþjónustu og með því að prófa nýjar aðferðir.

Eru í takt við staðbundna stefnumörkun
Innkaup hafa áhrif á heilsu og umhverfi. Vistvæn innkaup geta lágmarkað slík áhrif.
Í miðborg Frankfurt am Main var 54% af losun NOx af völdum strætó – sem voru þó aðeins 4% af umferðinni. Nú eru eingöngu keyptir inn strætisvagnar með lágmarkslosun sem hefur haft gríðarleg áhrif á loftgæði í miðborginni.

Geta stuðlað að nýsköpun
Í Maidstone í Bretlandi var farin sú leið að leita eftir lausnum í nánu samráði við markaðinn. Boðin var út ræstingaþjónusta þar sem notuð voru hreinsiefni með lítil áhrif á umhverfið og innihéldu ekki tiltekin hættuleg efni. Þetta fól ekki í sér neinn aukakostnað. Fyrirtækið sem fékk útboðið sérhæfir sig nú í umhverfisvænum lausnum og skilgreinir sig sem umhverfisvænt ræstingafyrirtæki – og fleiri hafa fylgt í kjölfarið.

Saga af árangursríku vistvænu útboði í Svíþjóð (af vef Miljöstyrningsrådet)

Í sveitarfélaginu Huddinge í Svíþjóð stóð til að fara í útboð um skólaakstur og annan akstur. Útboði áttu að vera bæði hagstæð og vistvæn. Þetta var árið 2005 og á þeim tíma var markaður með visthæfa bíla nýr og ótryggur. Einnig var lögð sérstök áhersla að auka öryggi farþega. En hvernig var best að gera þetta? Leitað var ráða hjá birgjum og gerð var markaðsrannsókn til að setja ekki óraunhæfar en þó ákveðnar kröfur til birgja. Með því að leita til birgjanna fyrst var einnig hægt að koma upplýsingum áleiðis um spennandi útboð og fá þannig fleiri til að gera tilboð. Talað var við alla birgja á svæðinu Þessi undirbúningur útboðsins tók um eina vinnuviku.

Eftir markaðsrannsóknina var auðveldara að vita hve langt mátti ganga og um leið að gera sanngjarnar kröfur. Sendur var spurningalisti til 13 birgja, 7 svöruðu, 6 gerðu tilboð. Gerðir voru samningar við þrjú fyrirtæki. Kröfurnar í útboðinu höfðu ekki áhrif á verð. Markaðsrannsóknin sýndi að birgjarnir voru betur í stakk búnir til að koma til móts við kröfur sveitarfélagsins en var haldið í fyrstu.

Markaðsrannsóknin sýndi að einungis einn birgi gat boðið visthæfa bíla í öllum tilvikum, aðrir svöruðu á milli 10-15%. Jákvæð svörun var hjá birgjum varðandi það að auka framboð á visthæfum bílum. Sumir sögðu að kostnaður yrði sá sami og aðrir að hækkun yrði á bilinu 5-20%. Því var ákveðið að visthæfur bíll yrði matsskilyrði í útboðinu. Í dag hefði verið hægt að hafa mun stífari kröfur.

Í útboðinu voru gerðar eftirfarandi kröfur:

  • Að birginn sýni fram á hlutfall visthæfra bíla í þjónustunni á tímabilinu. Einnig þurfti birginn að sýna fram á aukningu í hlutfalli visthæfra bíla á tímabilinu og hvenær stæði til að bæta við visthæfum bílum.
  • Á þeim bílum þar sem hægt er að skipta á milli vistvæns eldnseytis og venjubundins var gerð krafa um að vistvænt eldsneyti yrði notað a.m.k. 75%. Birgi þurfti að gera grein fyrir notkun á vistvænu eldsneyti.
  • Í markaðskönnuninni var athugað með hvort fyrirtæki gætu auðveldlega kennt ökumönnum sínum vistakstur pg svp reyndist vera. Því var ákveðið að hafa ákvæði um þjálfun í vistakstri sem samningsskilyrði. Fyrirtækin þurftu í tilboðinu að gera grein fyrir hvernig kennslu og menntun ökumanna í vistakstri yrði háttað.
  • Í stað þess að gera ýmsar kröfur í útboðinu um t.d. dekk án HA-olíu, umhverfisvænan bílaþvott og olíur sem getur verið mismunandi, var gerð krafa um að innan árs skuli birginn hafa komið sér upp umhverfisstjórnun. Í tilboði komi fram samantekt á umhverfisstarfi fyrirtækisins.
  • Gerðar voru kröfur um aldur farartækja í stað þess að biðja um EURO-staðla eða umhverfisstaðla.
  • Ökumenn máttu ekki vera dæmdir fyrir alvarleg brot og tryggja þurfti að ökumenn keyrðu ekki undir áhrifum áfengis og vímuefna m.a. með notkun áfengislása í bílunum.