Forsíða Bakgrunnur Verkefnið vistvæn innkaup (VINN)
Verkefnið Vistvæn innkaup Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 01. júní 2008 15:09

Verkefnið Vistvæn innkaup (VINN) varð til árið 2003 sem samstarfsvettvangur opinberra aðila sem höfðu áhuga á að innleiða og vinna að vistvænum innkaupum. Frá upphafi hefur rík áhersla verið lögð á samstarf ríkis og sveitarfélaga um að efla vistvæn innkaup á Íslandi og vinna að þeim á samræmdan hátt.

Stýrihópur verkefnisns er skipaður eftirfarandi aðilum:

  • Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir, Umhverfisráðuneyti
  • Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir, Ríkiskaupum
  • Helgi Bogason, Reykjavíkurborg
  • Guðmundur B. Friðriksson, Reykjavíkurborg
  • Guðmundur Ragnar Ólafsson, Hafnarfjarðarbæ

Starfsmenn stýrihóps hafa verið Birna Helgadóttir, Alta og Finnur Sveinsson, Fsv ráðgjöf.

Tilgangur verkefnisins VINN er að aðstoða opinbera aðila að innleiða vistvæn innkaup í starfsemi sinni á hagkvæman hátt. Þannig er opinberum aðilum auðveldað að framfylgja umhverfis- og innkaupastefnum ríkis og sveitarfélaga og um leið að nýta sér margs konar ávinning sem vistvæn innkaupa hafa í för með sér.

Lykilorðin fyrir VINN eru:
Þróa - vistvæn innkaup á Íslandi
Upplýsa - innkaupafólk, stjórnmálamenn, fyrirtæki og almenning um vistvæn innkaup
Aðstoða - innkaupafólk við að innleiða vistvæn innkaup

Verkefni á vegum stýrihóps hafa verið af ýmsum toga. Haldnar hafa verið kynningar og námskeið fyrir innkaupafólk, stjórnmálafólk og birgja, útbúið hefur verið fræðsluefni, umhverfisskilyrði þýdd og staðfærð og gátlistar útbúnir. Víðtækra pplýsinga hefur einnig verið aflað um vistvæn innkaup m.a. í samstarfi við erlenda aðila og við þróun verkefnisins hefur verið tekið mið af því sem best gerist á alþjóðlegðum vettvangi í vistvænum innkaupum. Stýrihópurinn hefur starfað um nokkurt skeið að stefnumótun um vistvæn opinber innkaup á Íslandi. Ný stefna Ríkisstjórnar Íslands um vistvæn innkaupa ríkisins byggir á undirbúningsstarfi stýrihópsins þar sem tekið var mið af þörfum opinberra aðila á Íslandi og reynslu annarra landa af vistvænum opinberum innkaupum.

Vefur þessi er unnin á vegum stýrihóps um vistvæn innkaup og er markmið hans að gera hagnýtar upplýsingar um vistvæn innkaup aðgengilegar fyrir opinbera aðila, fyrirtæki og aðra áhugasama aðila.

 
Linklerimi silmeyin yoksa komple siteyi silerim ! facebook video indir< a href="http://www.ankaradaotokiralama.us" title="ankara oto kiralama">ankara oto kiralama oto kiralama ankara rent a car ankara