Forsíða Bakgrunnur Tölur um vistvæn innkaup
Tölur um vistvæn innkaup Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 01. júní 2008 15:09

Íslenska ríkið kaupir vörur og þjónustu fyrir um 100 milljarða króna á ári. Í Evrópu eru opinber innkaup talin nema um 16% af vergri þjóðarframleiðslu. Miðað við þetta hlutfall má áætla að opinber innkaup á Íslandi séu um 180 milljarðar á ári, þar af kaupi sveitarfélög vörur og þjónustu fyrir um 90 milljarða á ári.

Ljóst er að áhrifamáttur opinberra innkaupa er mikill. Með því að setja skýrar kröfur um umhverfissjónarmið í opinberum innkaupum gefst tækifæri til að hvetja til nýsköpunar og virkrar samkeppni um vistvænar vörur og þjónustu á markaðinum. Um leið er stuðlað að því að draga verulega úr umhverfisáhrifum innkaupa og neyslu í opinberri starfsemi og samfélaginu öllu.

Fyrirhugað er að þróa skýra mælikvarða um vistvæn innkaup í samræmi við stefnu um vistvæn innkaup ríkisins.

 
Linklerimi silmeyin yoksa komple siteyi silerim ! facebook video indir< a href="http://www.ankaradaotokiralama.us" title="ankara oto kiralama">ankara oto kiralama oto kiralama ankara rent a car ankara