|
Sunnudagur, 01. júní 2008 15:06 |
|
Á undanförnum árum hafa Evrópusambandið (ESB) og Norðurlöndin unnið að því að efla aðgerðir sem miða að sjálfbærri þróun. Áhersla hefur m.a. verið lögð á að efla vistvæn opinber innkaup. Lög og stefnur íslenska ríkisins undanfarin ár endurspegla einnig aukna áherslu á vistvæn opinber innkaup. Sjá nánar um lög og stefnur hér.
Áæltað er að opinber innkaup á Íslandi séu um 180 milljarðar á ár og því er ljóst er að áhrifamáttur opinberra innkaupa er mikill. Með því að setja skýrar kröfur um umhverfissjónarmið í opinberum innkaupum gefst tækifæri til að hvetja til nýsköpunar og virkrar samkeppni um vistvænar vörur og þjónustu á markaðinum. Um leið er stuðlað að því að draga verulega úr umhverfisáhrifum innkaupa og neyslu í opinberri starfsemi og samfélaginu. Sjá tölur um vistvæn innkaup hér. Verkefnið Vistvæn innkaup (VINN) varð til árið 2003 sem samstarfsvettvangur opinberra aðila sem höfðu áhuga á að innleiða og vinna að vistvænum innkaupum. Tilgangur verkefnisins VINN er að aðstoða opinbera aðila að innleiða vistvæn innkaup í starfsemi sinni á sem hagkvæman hátt. Sjá nánar um verkefnið Vistvæn innkaup hér.
|